Giggs búinn að skrifa undir | Spilar sitt 23. tímabil með United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2012 12:00 Ryan Giggs. Mynd/AFP
Ryan Giggs er búinn að skrifa undir nýjan eins árs samning við Manchester United sem þýðir að velski miðjumaðurinn mun spila sitt 23. tímabil með United 2012-2013. Ryan Giggs er orðinn 38 ára gamall og er eini leikmaðurinn sem hefur skorað á öllum tímabilum síðan að enska úrvalsdeildin var sett á laggirnar haustið 1992. Giggs lék sitt fyrsta leik með United í mars 1991 en hann hefur aldrei spilað fyrir annað félag á ferlinum. Hann er í dag leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi og hefur þegar bætt met Bobby Charlton um 140 leiki. „Ryan er undraverður leikmaður. Að mörgu leiti er hann sameiningartákn fyrir öll liðin mín hjá United. Hann hefur enduruppgötvað sig sem leikmann hvað eftir annað, aðlagast að breyttum leik og alltaf haldið ástríðunni og hungri í árangur," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United. Ryan Giggs hefur unnið 25 titla með Manchester United þar á meðal Meistaradeildina tvisvar sinnum, ensku deildina tólf sinnum og enska bikarinn fjórum sinnum. Hann hefur alls spiað 898 leiki fyrir Manchester United. „Þegar ég skrifaði undir minn fyrsta samning hjá United þá bjóst ég aldrei að spila fyrir félagið í 22 ár. Mér líður vel og ég veit að ég get enn skilað einhverju til liðsins og hjálpað félaginu að vinna titla. Það var frábært að vinna 19. meistaratitilinn en hjá þessu félagi skiptir alltaf mestu máli hvað við gerum næst," sagði Ryan Giggs.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira